jæja álagið og pressan er rosaleg!
einhvernvegin finnst mér að hún Alda mín sé eitthvað tæp þessa dagana,,gæti stafað af miklu blóðleysi!!! annars er bara allt fínt að frétta. Gabríel blómstrar bara þessa dagana er bara eins og nýtt barn! ég var látin hætta með hann á bobba og fær hann bara einhverja ofnæmisþurrmjólk sem heitir nutramigen..alveg ógeðsleg! en hann bara spjallar og brosir og er voða kátur. hann var vigtaður um daginn og er gaurinn að smella í 5kg. BARA HLUNKUR!!
ég er að hugsa um að fara setja upp jólaljósin hjá mér, þarf bara að henda sigga uppá háaloft að ná í seríurnar, ég fer nebbla alls ekki uppá loft! ég er búin að eiga þetta hús í 3 ár og hef ekki einusinni kikkað uppá loft! MÉR FINNST HÁALOFT ÓGEÐSLEG!! einusinni vantaði mig ferðatösku sem var uppi á lofti og siggi var ekki heima þannig að ég fékk hana stellu mína til að ná í hana fyrir mig!
ég veit ekki hvað þetta er en mig langar ekki einusinni að sjá þarna upp! enda er opið svo lítið að ég myndi pottþétt festast þar,,,ekki ólíklegt miða við hvað ég er misheppnuð. ég var að mála fyrir mömmu í sveitinni og var svona að leggja lokahönd á verkið þegar ég steig á eitthvað, mér fannst það vont, var þreytt og alveg að vera búin þannig að ég hálf reiddist og spáði ekkert í það á hvað ég steig og hélt áfram að mála. eitthvað fannst mér undarlegt hvað sokkarnir mínir festust við gólfið þannig að ég fór að skoða málið...viti menn..ÉG HAFÐI STIGIÐ Á LOKIÐ AF MÁLNINGARFÖTUNNI OG BÚIN AÐ DANSA UM STOFUNA Á HVÍTUM (sem áttu annars að vera svartir!) NIKE SOKKUM,,,þið getið rétt hugsað ykkur!
jæja ég er að hugsa um að fara leika húsmóðir og taka úr þvottavélinni!
GUÐ ÉG LIFI SVO ÆSISPENNANDI LÍFI!!